Alvarlegar afleiðingar á hönnun og arkitektúr - Niðurstöður úr könnun um áhrif Covid-19

22. apríl 2020

Hönnunarmiðstöð Íslands sendi frá sér könnun dagana 7.-14. apríl varðandi áhrif Covid-19 á starfsemi á sviði hönnunar og arkitektúrs. 483 svör bárust frá stjórnendum, launafólki og sjálfstætt starfandi hönnuðum og arkitektum úr fjölbreytilegum greinum. 

Af niðurstöðunum er ljóst að ástandið hefur alvarlegar afleiðingar. 

50% hönnuða og arkitekta hafa misst helming til allar tekjur sínar

75% fyrirtækja finna fyrir verulegri lækkun á tekjum

70% verkefna hefur verið frestað, hætt eða minnkað verulega. 

Í könnuninni var kallað eftir tillögum að viðspyrnu, til að efla atvinnulíf á sviðinu með áherslu á gæði, sjálfbærni og virðisauka til framtíðar.

Hér má sjá niðurstöður úr könnuninni:

Dagsetning
22. apríl 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Covid-19
  • Könnun