Stjórnir
Stjórnir og starfshættir
Fjöldi manns sitja í ólíkum stjórnum og ráðum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Má þar nefna stjórn miðstöðvarinnar sjálfrar, framkvæmdastjórn, stjórn HönnunarMars, stjórn Hönnunarsjóðs, dómnefnd Hönnunarverðlauna og ritstjórn HA. Auk þess skipar Miðstöðin fulltrúa í ýmsar stjórnir, ráð og nefndir meðal annars á vegum stjórnvalda.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs er í eigu félaganna níu, en í stjórn sitja formenn þeirra eða fulltrúi tilnefndur af stjórn viðkomandi félags. Stjórn mótar félaginu stefnu og hefur eftirlit með því að henni sé framfylgt, stuðlar að vexti og viðgangi félagsins og hefur yfirumsjón með rekstri. Stjórninni ber að gæta jafnt hagsmuna allra hluthafa.
Í framkvæmdastjórn sitja formaður stjórnar, varaformaður og framkvæmdastjóri. Framkvæmdastjórn hefur umboði stjórnar til ákvarðanatöku er varðar verkefni Miðstöðvarinnar og allan almennan rekstur annað en stefnumarkandi ákvarðanir og verulegar fjárhagsskuldbindingar. Stjórn kýs formann og varaformann á aðalfundi sem haldinn er á vorin.
Stjórn 2019 - 2020
Kristján Örn Kjartansson
Formaður stjórnar Arkitektafélag Íslandskris@krads.infoRósa Dögg Þorsteinsdóttir
Varaformaður stjórnar, Félag húsgagna- og innanhúsarkitektarosa@limelight.isBethina Elverdam Nielsen
TextílfélagiðSvava Þorleifsdóttir
Félag íslenskra landslagsarkitektasvava@landslag.isSigrún Jóna Norðdahl
Leirlistafélagiðsigrunjona@gmail.comMagnea Einarsdóttir
Fatahönnunarfélagiðmagnea@magneaeinarsdottir.comÓlöf Garðarsdóttir
Félag íslenskra teiknaraolof@letterpress.isKristín María Sigþórsdóttir
Félag iðn- og vöruhönnuðakristinmaria@gmail.comÁsa Gunnlaugsdóttir
Félag íslenskra gullsmiðaasa@asaiceland.com
HönnunarMars
Stjórn HönnunarMars er skipuð af stjórn Miðstöðvarinnar. Í henni sitja þrír fulltrúar, fulltrúi stjórnar Hönnunarmiðstöðvar, fulltrúi hönnunarsamfélagsins og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Stjórnarmenn eru skipaðir til 3 ára í senn, fyrir utan framkvæmdastjóra sem er með fast sæti í stjórn.
Bergur Finnbogason
Fulltrúi atvinnulífs hönnunar og arkitektúrsbergur@ccpgames.comBrynhildur Pálsdóttir
Fulltrúi stjórnar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrsbrynhildur@brynhildurpalsdottir.isHalla Helgadóttir
Þórey Einarsdóttir
Hönnunarsjóður
Í stjórn Hönnunarsjóðs sitja 5 stjórnarmenn skipaðir til þriggja ára í senn, þrír eru skipaðir af stjórn Hönnunarmiðstöðvar, einn fulltrúi skipaður af mennta- og menningarmálaráðuneyti og einn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem jafnframt er formaður stjórnar.
Birna Bragadóttir
Formaður Hönnunarsjóðs, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytiBirna.Bragadottir@capacent.isGuðrún Inga Ingólfsdóttir
Fulltrúi skipuð af mennta- og menningarmálaráðuneytigudruni@gmail.comRúna Thors
Fulltrúi skipuð af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrsrunathors@lhi.isStefán Snær Grétarsson
Fulltrúi skipaður af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrsstefansnaer@gmail.comHrólfur Cela
Dómnefnd Hönnunarverðlauna
Er skipuð fimm fagmönnum úr hópi hönnuða og arkitekta, þrem skipuðum af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, einum skipuðum frá Hönnunarsafni, sem jafnframt er formaður, einum fulltrúa frá Listaháskóla Íslands auk fulltrúa frá Samtökum iðnaðarins.
Sigríður Sigurjónsdóttir
formaður dómnefndar Hönnunarverðlauna ÍslandsSigrún Birgisdóttir
Fulltrúi Listaháskóla Íslandssigrunbirgis@lhi.isSigrún Halla Unnarsdóttir
Fulltrúi stjórnar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrssigrununnarsdottir@gmail.comHörður Lárusson
Fulltrúi stjórnar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrshordur@kolofon.isPaul Bennett
Chief Creative Officer hjá IDEOMargrét Kristín Sigurðardóttir
Almannatengsla - og samskiptastjóri Samtaka iðnaðarins.
Ritstjórn HA
Þriggja manna ritstjórn HA er skipuð af stjórn Hönnunarmiðstöðvar til 3 ára í senn.
María Kristín Jónsdóttir
María Rán Guðjónsdóttir
Fulltrúi skipuð af mennta- og menningarmálaráðuneytiritstjorn@hadesignmag.isGarðar Snæbjörnsson
Fulltrúi skipaður af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrsritstjorn@hadesignmag.isÞorleifur Gunnar Gíslason
grafískur hönnuðurritstjorn@hadesignmag.is
Hönnunarlaun
Stjórn Miðstöðvarinnar tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá varafulltrúa í úthlutunarnefnd hönnunarlauna, hver fulltrúi situr í þrjú ár þannig að ávallt er einn nýr tilnefndur á ári.
Ástþór Helgason
Gullsmiður, fulltrúi skipaður af stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrsastor.helgason@gmail.comÞórunn Hannesdóttir
vöruhönnuðurHalldóra Vífilsdóttir
arkitekt
Fulltrúar í stjórn Myndstef
Rósa Dögg Þorsteinsdóttir
Varaformaður stjórnar, Félag húsgagna- og innanhúsarkitektarosa@limelight.isMagnea Einarsdóttir
Fatahönnunarfélagiðmagnea@magneaeinarsdottir.comArna Arnardóttir
fagráð, Félag íslenskra gullsmiðaarnastjarna@hotmail.com
Fulltrúaráð Listahátíðar
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs á sæti í fulltrúaráði Listahátíðar.
Halla Helgadóttir
Fulltrúi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í úthlutunarnefnd menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur
Snæfríð Þorsteinsdóttir
FÍT - Félag íslenskra teiknarasnaefrid@snaefrid.is
Siðareglur
Skipun í stjórnir
Gæta skal að jafnvægi á milli greina, kynja og aldurs við val á fulltrúum í stjórnir, ráð og nefndir. Fulltrúi sem tekur sæti í stjórn, ráði, nefnd eða vinnuhópi fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs situr fyrir hönd allra faghópa og þarf að hafa góða og yfirgripsmikla þekkingu á greinum hönnunar og arkitektúrs, vinna faglega og sýna hlutleysi. Almennt er ekki gert ráð fyrir að fulltrúar í stjórnum taki að sér greidd verkefni fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Komi upp sú staða að stjórnendur telji það mikilvægt þá þarf að bera þá ráðstöfun undir stjórn miðstöðvarinnar.
Í stjórnum og nefndum skal almennt miðað við 3 ár en mögulegt er að gefa kost á setu í tvö tímabil eða 6 ár. Gæta þarf að ekki sé mörgum fulltrúum skipt út í einu til að tryggja samfellu og stöðugleika í starfinu.
Val fulltrúa í dómnefndir / valnefndir
Gæta skal að jafnvægi á milli greina, kynja og aldurs við val á fulltrúum í dómnefndir / valnefndir. Fulltrúi í dómnefnd / valnefnd þarf að hafa mjög góða þekkingu á hönnunargreinum vera faglegur og óhlutdrægur. Mikilvægt er að vandað sé vel til verka við dómnefndarstörf og gæti vel að vanhæfi áður en þau hefjast. Ávallt skal skipa varamenn vegna mögulegs vanhæfis.
Vanhæfni
Fulltrúi telst vanhæfur: hafi viðkomandi tekið með beinum eða óbeinum hætti þátt í verkefni sem fjallað er um; ef viðkomandi er maki, skyldur eða mægður aðila sem á þátt í verkefni sem fjallað er um; ef viðkomandi á hagsmuna að gæta í verkefni sem fjallað er um; ef fyrir hendi eru aðstæður sem gefa tilefni til að draga óhlutdrægni viðkomandi í efa með réttu.
Sá sem er vanhæfur til að sinna dómnefndarstörfum eða öðrum störfum (þar sem gæta þarf að vanhæfi) má ekki taka þátt í undirbúningi, meðferð eða úrlausn þeirra. Formaður stjórnar, dómnefndar eða sá sem hefur með málið að gera þarf að ganga úr skugga um að allir fulltrúi dómnefndar eða annarra starfa séu hæfir. Reynist svo ekki vera þarf að gera viðeigandi ráðstafanir áður en störf hefjast. Fulltrúi dómnefndar eða annarra starfa þarf að láta umsvifalaust vita um meint vanhæfi svo hægt sé að bregðast strax við.
Stjórnir og starfsmenn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs skulu vera meðvitaðir um: að vinna af fagmennsku, taka tillit til ólíkra greina hönnunar og gæta hlutleysins; að unnið er á beiðu sviði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs; að þekking, reynsla og tengsl sem skapast í starfi fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs þurfa að lifa þar áfram; að verkefnin sem unnin eru eiga að þjóna mörgum og vera mikilvæg fyrir breiðan hóp hönnuða / arkitekta – að hygla ekki einum hópi eða einstaklingum umfram aðra.