DesignTalks 2020 - Genki Instruments og MINISOPHY!

Jón Helgi Hólmgeirsson, yfirhönnuður Genki Instruments, bætist í hóp fyrirlesara og MINISOPHY eftir Katrínu Ólínu hönnuð og Sigríði Þorgeirsdóttur heimspeking gefur tóninn á  DesignTalks 2020 sem fer fram í Hörpu 26. mars. Þema ráðstefnunnar sem er lykilviðburður HönnunarMars hátíðarinnar er Nýr heimur, nýjar leiðir.

Sú jákvæða togstreita sem myndast þegar ólíkir hugsunarhættir og aðferðafræði mætast er ástæðan fyrir því hvers vegna við gátum búið Wave til.

Jón Helgi Hólmgeirsson

Jón Helgi Hólmgeirsson er yfirhönnuður og hluti þverfaglegs teymis hönnuða og verkfræðinga, stofnenda Genki Instruments, hönnunardrifins hátæknifyrirtækis sem vinnur að því að gera tækni náttúrulegri.

Allt frá útskrift úr Listaháskólanum hafa verk Jóns Helga vakið mikla athygli og alþjóðlega viðurkenningu, en þau þykja framúrstefnuleg og hönnuð með það í huga að notendur geti aðlagað þau að sér.

Þessi áhrif kristallast í Wave, hring sem gerir tónlistarfólki kleyft að móta og stýra hljóði með hreyfingum handarinnar en markmið Genki Instruments er að gera samspil okkar við tækni náttúrulegri.

Genki Instruments eru handhafar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2019 fyrir Wave. Lesa meira hér.

designmarch
📢 DesignTalks 2020 - Genki Instruments og MINISOPHY Jón Helgi Hólmgeirsson, yfirhönnuður Genki Instruments, bætist í hóp fyrirlesara 👉og MINISOPHY eftir Katrínu Ólínu hönnuð og Sigríði Þorgeirsdóttur heimspeking gefur tóninn á DesignTalks 2020 sem fer fram í Hörpu 26.mars. // Jón Helgi Hólmgeirsson, Head of design at Genki Instruments joins the stage 👉and MINISOPHY by designer Katrín Ólína and philospher Sigríður Þorgeirsdóttir sets the tone at DesignTalks 2020 in Harpa, concert hall on the 26th of March.

MINISOPHY bregst við vanda sem við erum öll meira og minna að kljást við: skerta athygli á tímum ofgnóttar upplýsinga og aftengingu við okkur við okkur sjálf við aðstæður sítengingar. Þess vegna er iðkun djúprar hugsunar kannski mikilvægari núna en nokkru sinni fyrr í sögu mannkyns.

Katrín Ólína

MINISOPHY eftir Katrínu Ólínu, hönnuð, listamann og hugsuð, og Sigríði Þorgeirsdótturprófessor í heimspeki við Háskóla Íslands er vefrit í smá-formi á ensku.

MINISOPHY birtir heimspekilega smátexta, æfingar í smáspekilegri hugsun, myndverk, hversdagssmáspekiraddir og visku-tilvitnanir. MINISOPHY er tilraun til nýstárlegrar notkunar á samfélagsmiðlum.Með því að stefna saman list og heimspeki kynnir MINISOPHY aðferðafræði gagnrýninnar og skapandi hugsunar.

Katrín Ólína vinnur þverfaglega að hönnun. Verkefni hennar tengja saman ólík svið, en hún vinnur á mörkum vöruhönnunar, rýmis-, skartgripa-, grafískrar listar og hönnunarheimspeki. Hönnun er heimspeki, því hver einasti gripur felur í sér hugmynd um heiminn og stöðu okkar í honum.

Sigríður Þorgerisdóttir er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Smáspeki eða Minisophy tengist rannsóknuma Sigríðar á líkamlegri, heimspekilegri hugsun. Sjá betur hér.

Sigríður teygir heimspeki í ýmsar áttir í viðleitni sinni til að gera heiminn heimspekilegri og heimspekina veruleikatengdari. Sigríður hefur birt fjölda bóka og greina um rannsóknir sínar og er eftirsóttur fyrirlesari víða um heim.

designmarch
DesignTalks 2020 - 26.03❗️ Miðasala er hafin! Tryggðu þér miða á sérstöku forsölu verði núna! Kynnar Robert Thiemann, ritstjóri FRAME Magazine og Hlín Helga Guðlaugsdóttir stjórnandi DesignTalks. Ekki missa af! Linkur í bio til að kaupa mið! // DesignTalks 2020 - 26.03❗️ Ticket are now available! Special early bird price! Moderated by Robert Thiemann, FRAME Magazine and Hlín Helga Guðlaugsdóttir, the curator of the event. Grab your ticket! Link in bio for more info. #designmarch #hönnunarmars #designtalks #reykjavik #iceland

Þema DesignTalks í ár, Nýr heimur, nýjar leiðir, birtist eins og rauður þráður í gegnum daginn og hnýtir saman erindi erlendra og innlendra hönnuða og arkitekta, sem á einn eða annan hátt eru að bregðast við stöðu mála í heiminum í dag.

Hlín Helga Guðlaugsdóttir er stjórnandi DesignTalks og ásamt henni mun Robert Thiemann, stofnandi og aðalritstjóri FRAME stjórna dagskránni, en hann er stofnandi og forstjóri Frame Publishers.

Fylgstu með því á næstu vikum munum við kynna fleiri nöfn sem ætla að veita innblástur á DesignTalks 2020 í Hörpu.
Uppselt hefur verið á viðburðinn undanfarin ár -tryggðu þér miða hér.

Hér er viðburðurinn á Facebook.

DesignTalks er lykilviðburður HönnunarMars, skipulagt af Hönnunarmiðstöð Íslands og styrkt af Arion banka og Reykjavíkurborg.

Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • DesignTalks
  • Greinar