Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir fagnar 10 ára afmæli 

8. nóvember 2019
Ljósmyndari / Aldís Pálsdóttir

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir opnaði eigin verslun með sinni hönnun fyrir 10 árum síðan og byrjar afmælisfögnuðurinn í dag.

Andrea útskrifaðist úr fatahönnunarnámi í Danmörku vorið 2009 en samhliða náminu undirbjó hún opnun fyrirtækisins ásamt eiginmanninum sínum, Ólafi Ólasyni, arkitekt sem einmitt hannað lógóið. 

Verslunin AndreA opnaði svo á Strandgötu 19 í Hafnarfirði þann 24 október 2009. 


„Upprunalega átti þetta að vera vinnustofa og vefverslun en fljótlega þurftum við að flýja með vinnustofuna annað og einfaldlega stækka búðina,“ segir Andrea en í dag er verslunin staðsett í Norðurbakka í Hafnarfirði - þar sem slegið verið upp allsherjar afmælisveislu í dag milli 17-20. 20 prósent afsláttur verður af öllum vörum að því tilefni alla helgina.

Hér er Facebooksíða verslunarinnar fyrir frekari upplýsingar.

Dagsetning
8. nóvember 2019

Tögg

  • Fatahönnun
  • Greinar