Endurmenntun og stjórnvöld bjóða á sumarnámskeið

22. maí 2020
Menntamálaráðuneytið niðurgreiðir námskeið í sumar

Hafa vinnuaðstæður breyst upp á síðkastið? Hefur verkefnum fækkað? Viltu efla þig í starfi?

Menntmálaráðuneytið niðurgreiðir námskeið Endurmenntunar Háskóla Íslands í sumar. Námskeiðin eru sérstaklega hugsuð fyrir námsmenn, atvinnuleitendur, þá sem eru í hlutabótaleið eða þá sem vilja brúa eitthvað færnibil eða sem leið til starfsþróunar. Þannig í raun eru þau opin öllum þó stjórnvöld hugsi þetta úrræði sérstaklega fyrir þann hóp sem er í biðstöðu. Sjá nánar hér.

Það eru nokkur námskeið í þessu framboði sem gætu höfðað vel til félagsmanna AÍ:

Verkefnastjórnun fyrir sjálfstætt starfandi eldhuga

WordPress grunnur – byrjendanámskeið

Hvernig birtist þú á netinu? – Markaðssettu sjálfan þig

Áætlanagerð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Þrjú stök verkefnastjórnunarnámskeið

Dagsetning
22. maí 2020
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Tögg

  • Arkitektúr