Opið fyrir umsóknir um sýningarhald í Ásmundarsal 2021

31. ágúst 2020

Ásmundarsalur óskar eftir tillögum að sýningum, viðburðum eða uppákomum sem fanga fjölbreytileika listarinnar. Einnig er óskað eftir vinnustofu listamanns í Gunnfríðargryfju í einn til tvo mánuði í senn.

Umsóknir skulu berast á netfangið asmundarsalur@asmundarsalur.is fyrir 10. september næstkomandi. Vinsamlegast skilið inn efni í pdf skjali, hámark 5 síður. Í umsókn skal taka eftirfarandi fram:

            •           Fullt nafn listamanns

            •           Lýsing á fyrirhugaðri sýningu / viðburði / verkefni

            •           Myndir af völdum verkum, textum o.þ.h.

            •           Vefsíða listamanns ef við á


            •           Fylgiskjöl: Ferilskrá

 

Ásmundarsalur er sjálfstætt starfandi sýningarsalur sem leggur til aðstöðu og vinnustofu fyrir listamenn í miðbæ Reykjavíkur.

Dagsetning
31. ágúst 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Greinar
  • Ásmundarsalur