Sýningin 100% Ull opnar í Hönnunarsafni Íslands

17. september 2020

Á sýningunni 100% Ull getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag. Þátttakendur eru Ásthildur Magnúsdóttir, Magnea Einarsdóttir, Kormákur & Skjöldur, Kula by Bryndís, Ró og Ístex. Sýningarstjórar eru Birgir Örn Jónsson og Signý Þórhallsdóttir.

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Á sýningunni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag. Þátttakendur koma frá ólíkum sviðum hönnunar og handverks en eiga það sameiginlegt að vinna af hugvitssemi með íslensku ullina í sínum afurðum.

Sérstök opnun á sýningunni er núna laugardaginn 19. september í Hönnunarsafninu milli 12-17 en hún stendur til 15. nóvember.

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Það eru skiptar skoðanir á íslensku ullinni. Sumum finnst hún ómöguleg en aðrir dásama hana og hafa lýst yfir að erlend ull sé steingeld í samanburði. Hvað sem því líður þá skiptir máli að geta unnið með efnivið úr sínu nánasta umhverfi.

Ullarvinnsla hefur löngum verið samofin handverks- og iðnaðarsögu þjóðarinnar. Í dag telur íslenski sauðfjárstofninn hálfa milljón kindur Um 750 tonn af ull eru nýtt í ullarframleiðslu á hverju ári. Ullarvörur voru um langt skeið ein helsta útflutningsvara Íslendinga og á miðöldum var vaðmál, sem ofið var úr ull og mælt í álnum, mikilvægur gjaldmiðill. Enn í dag er talað um að komast í álnir í þeirri merkingu að verða efnaður.

Vinnsla á ull fór fram á heimilum samhliða bústörfum til loka 19. aldar þegar hún færðist yfir í vélvæddar verksmiðjur. Á 20. öld var blómleg framleiðsla á fatnaði og vefnaðarvöru á Íslandi. Með breyttri heimsmynd færðist slík framleiðsla til annarra heimshluta þar sem framleiðslukostnaður er lægri. Í dag sér fyrirtækið Ístex um að þvo, meðhöndla og spinna um 99% af allri íslenskri ull en minni og sérhæfðari ullarvinnslur eins og Uppspuni og Þingborg hafa skotið upp kollinum á seinni árum.

Þátttakendur sýningarinnar eru:

  • Ásthildur Magnúsdóttir, vefari
  • Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður
  • Verslunin Kormákur & Skjöldur
  • fyrirtækið Kula by Bryndís, sem sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum
  • samstarfsverkefnið Ró
  • ullarvinnslufyrirtækið Ístex

    Sýningarstjórar eru Birgir Örn Jónsson og Signý Þórhallsdóttir
Dagsetning
17. september 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Greinar
  • Sýning
  • Hönnunarsafn Íslands
  • Fatahönnun
  • Vöruhönnun
  • Textíll
  • Textílhönnun