Fatahönnunarfélag Íslands

FÍ er fagfélag fatahönnuða á Íslandi. Markmið þess er að efla samheldni meðal þeirra sem starfa við fatahönnun á Íslandi og standa vörð um réttindi félagsmanna. Félagið leggur áherslu á að stuðla að öllu því er til framfara horfir í greininni og að efla hugvit innan íslenskrar fatahönnunar. Félagið leggur sig fram við að upplýsa almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettvang.
Um Félagið
Fatahönnunarfélag Íslands (FÍ) er fagfélag fatahönnuða á Íslandi og er eigandi Hönnunarmiðstöðvar Íslands ásamt átta öðrum fagfélögum.
Markmið félagsins er að efla samheldni meðal þeirra sem starfa við fatahönnun á Íslandi og standa vörð um réttindi félagsmanna. Félagið leggur áherslu á að stuðla að öllu því er til framfara horfir í greininni og að efla hugvit innan íslenskrar fatahönnunar. Félagið leggur sig fram við að upplýsa almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettvang.
Fræðsla
Félagið stendur fyrir hinum ýmsu sýningum og atburðum með það að leiðarljósi að kynna íslenska fatahönnun, fræða almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettvang ásamt því að hvetja til faglegrar umræðu.
Uppskeruhátið
Uppskeruhátíðin er haldin í árslok og er markmið hennar að efla samheldni félagsmanna og skapa vettvang fyrir fræðslu og faglega umræðu.
Indriðaverðlaunin
Annað hvert ár veitir Fatahönnunarfélagið Indriðaverðlaunin, sem nefnd eru eftir Indriða Guðmundssyni klæðskera. Með verðlaununum vill Fatahönnunarfélag Íslands veita hönnuðum viðurkenningu fyrir starf sitt og framlag til íslenskrar fatahönnunar og beina ljósi að því besta sem er að gerast í íslenskri fatahönnun hverju sinni. Verðlaunin eiga að auka vitund og virðingu fyrir íslenskri fatahönnun. Hér má finna frekari upplýsngar um Indriðaverðlaunin
Hönnunarmars
Félagið hefur tekið þátt í HönnunarMars frá upphafi með samsýningum þar sem úrval hönnunar félagsmanna er sýnd undir listrænni stjórn sýningarstjóra.
Félagið er eitt af fagfélögum sem eiga Hönnunarmiðstöð og fá því félagsmenn forgang til þátttöku í Hönnunarmars.
HA - Tímarit um hönnun og arkitektúr
HA er tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr. Í ritinu er fjallað um allt frá sköpunarverkum ungra og upprennandi hönnuða yfir í helstu afrek arkitekta. Ritið ristir undir yfirborðið og skoðar hugsjónir og aðferðir hönnuða sem móta umhverfi okkar og komandi kynslóða.
HA er skrifað á tveimur tungumálum, íslensku og ensku, og höfðar jafnt til fagfólks sem og áhugafólks um hönnun og arkitektúr. Ritið kemur út tvisvar á ári, maí og nóvember. HA er gefið út af Hönnunarmiðstöð og fá félagsmenn FÍ ritið sent heim að dyrum.
Meðlimir í FÍ greiða árgjald sem nú er 18.000 kr. (reikningur berst í heimabanka).
Hafa Samband
Fatahönnunarfélag Íslands
Aðalstræti 2, 101 Reykjavík
Kt. 641001-2950
Tölvupóstfang: fatahonnunarfelag@honnunarmidstod.is
FÍ er með lokaðan umræðuvef á Facebook, „Umræðuvefur Fatahönnunarfélags Íslands“ er opinn félagsmönnum.
Stjórn Fatahönnunarfélags Íslands 2020 - 2022
Aníta Hirlekar
Ási Már Friðriksson
Erla Björk Baldursdóttir
Guðrún Guðjónsdóttir
Steinunn Björg Hrólfsdóttir
Magnea Einarsdóttir
Fulltrúi í stjórn Hönnunarmiðstöðvar
Lög Fatahönnunarfélags Íslands
1. gr. Félagið heitir “Fatahönnunarfélag Íslands”, starfssvið þess er allt landið. Lögheimili þess og stjórnarinnar er í Reykjavík. Á ensku heitir félagið „Icelandic Fashion Council“
2. gr. Markmið félagsins eru:
a. að efla samheldni meðal þeirra sem starfa við fatahönnun á Íslandi
b. að efla hugvit í íslenskri fatahönnun
c. að koma í veg fyrir að réttur félagsmanna sé fyrir borð borinn og stuðla að öllu því er til framfara horfir í greininni
d. að koma fram upplýsingum sem verða fatahönnuðum til framdráttar, (svo sem samkeppnir og fleira)
e. að setja upp upplýsingaform um fatahönnuði á Íslandi
f. að efla samskipti íslenskrar verslunar og fatahönnuða
g. að upplýsa almenning um fatahönnuði og þeirra starfsvettfang
h. að koma á reglulegu sambandi við þá sem starfa við fatahönnun og/eða eru í námi erlendis
3. gr. Aðalfundur kýs stjórn félagsins.
Stjórn félagsins skipa: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, vefstjóri og einn meðstjórnandi. Formaður skal hafa a.m.k. þriggja ára starfsreynslu í greininni. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn, ásamt einum varamanni. Kosning skal vera skrifleg og leynileg á aðalfundi. Varamaður tekur einungis stjórnarsetu í því tilfelli að stjórnarmaður forfallist og gefi eftir stjórnarsæti sitt.
Stjórn félagsins ræður skoðunarmann reikninga sem skal rannsaka reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður sínar fyrir aðalfund. Skoðunarmaður má ekki vera úr hópi stjórnarmanna eða félagsmanna. Heiðursfélagar skulu kosnir á aðalfundi.
Hver sá félagsmaður sem vill sitja stjórnarfund skal senda bréf þess efnis til stjórnar með tveggja vikna fyrirvara.
4. gr. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok júní ár hvert og boðaður með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Á dagskrá aðalfundar skal vera:
a. skýrsla stjórnar
b. reikningar félagsins
c. kosning stjórnar
d. skipað í nefndir
e. lagabreytingar
f. umræða og afgreiðsla mála
Fundur er löglegur ef löglega er boðað til hans. Rannsaka skal í byrjun fundar, hvort fundur sé lögmætur og lýsa því síðan yfir, hvort svo sé.
5. gr. Fundir skulu haldnir þegar þörf krefur. Boða skal til aukafundar ef minnst 10 félagsmanna krefjist þess. Um boðun aukafunda gilda sömu reglur og um aðalfund.
6. gr. Lögum félagsins má ekki breyta nema á löglegum aðalfundi. Til að lagabreyting öðlist gildi þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða lögmæts aðalfundar. Lagabreytingar skulu kynntar með fundarboði.
7. gr. Formaður skal boða til funda og stjórna þeim eða skipa fundarstjóra í sinn stað. Hann skal vinna að stefnumörkun fyrir félagið og sjá um framkvæmd ákvarðana aðal- og félagsfunda í samráði við stjórn. Afl atkvæða stjórnarmanna ræður afgreiðslu mála. Verði atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum.
Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans.
Ritari skal færa bók um allt það sem gerist á fundum félagsins og stjórnar. Einnig að lesa upp fundargerð í upphafi næsta fundar. Ennfremur rita bréf félagsins í samráði við formann. Formanni og ritara ber skylda að leggja bréf fram til stjórnar til samþykktar.
Gjaldkeri skal sjá um varðveislu sjóða félagsins í samráði við stjórn. Hann tekur á móti félagsgjöldum og sér um innheimtu á þeim. Hann borgar út reikninga félagsins. Hann leggur fram endurskoðaðan ársreikning á aðalfundi. Hann sér einnig um eignir félagsins.
Meðstjórnandi starfar að öllum tilfallandi málum er þurfa þykir með öðrum stjórnarmönnum og tekur sæti þeirra í forföllum þeirra eftir ákvörðun stjórnar.
Ef stjórnarmaður mætir ekki á þrjá fundi í röð og láðst hefur að tilkynna forföll, fellur hann sjálfkrafa frá og varamaður kemur í hans stað. Stjórnarmenn verða boðaðir á fundi aðeins einu sinni. Sama gildir um nefndarmenn.
Stjórn skal skipa þriggja manna Fagráð Fatahönnunarfélags Íslands til þriggja ára í senn. Fagráðið skulu sitja fatahönnuðir sem starfað hafa í faginu í a.m.k. fimm ár og hafa sýnt faglegan árangur í starfi. Fagráð kemur sér saman um tvo varamenn. Hlutverk Fagráðs er m.a. að meta umsóknir um félagsaðild frá aðilum sem ekki geta sýnt fram á háskólagráðu í fatahönnun og að hafa faglega aðkomu að viðburðum sem hafa með hagsmuni fatahönnuða á Íslandi að gera. Stjórn félagsins metur hvenær kalla skuli til Fagráð og hefur milligöngu um það gagnvart hagsmunaaðilum.
8. gr. Stjórnin skal halda meðlimaskrá og færa inn í hana alla nýja félaga. Þeir einir geta orðir félagsmenn sem eru háskólamenntaðir fatahönnuðir eða sem Fagráð, sbr. 7. gr., metur hæfa til inngöngu. Félagið leggur megin áherslu á vægi hugvits innan fatahönnunargeirans.
Sérstök nemendaaðild skal veitt nemendum í háskólanámi í fatahönnun. Nemendaaðild veitir rétt til þátttöku í félagastarfi félagsins og tillögurétt án atkvæðisréttar.
9. gr. Sá sem óskar inngöngu í félagið skal senda rafræna umsókn í gegnum vef Hönnunarmiðstöðvar. Stjórn og Fagráð munu meta innsendar umsóknir um leið og þær berast. Ef umsækjandi er með háskólagráðu í fatahönnun er hann sjálfkrafa samþykktur inn í félagið og sendur verður reikningur í heimabanka. Ef umsækjandi þarf undanþágu mun umsókn vera tekin fyrir af Fagráði sem fyrst eftir bestu getu. Sé umsækjandi samþykktur og hafi greitt félagsgjald, öðlast hann þegar full félagsréttind
10. gr. Félagsgjald skal ákveða á aðalfundi fyrir hvert komandi ár. Allir félagsmenn skulu vera skuldlausir fyrir aðalfund ella missa þeir atkvæðisrétt og kjörgengi næsta ár. Greiði félagsmaður ekki árgjaldið til félagsins í lok þess mánaðar þegar þess er krafist, er heimilt að innheimta hæstu löglega dráttarvexti á hverjum tíma á skuldinni. Stjórn félagsins getur tekið af félagaskrá þá, sem skulda árgjald sitt fyrir eitt ár, enda hafi þeir áður verið bréflega krafðir um greiðslu og þeim kynntar þessar afleiðingar vanskilanna.
11. gr. Brot á lögum og samþykktum félagsins skal kært til stjórnar. Úrsögn úr félaginu sendist stjórninni.
12. gr. Leysist félagið upp, skal sjóður þess renna til líknarmála.
13. gr. Stjórn félagsins ber eftir bestu getu að aðstoða félagsmenn sé þess óskað.
14. gr. Stjórn félagsins mun sækja um aðild að þeim félagasamtökum sem styrkja Fatahönnunanarfélagið og félagsmenn þess.
Lög voru samþykkt á aðalfundi 2011.
Breytingar á 8. og 9.grein voru samþykktar á aðalfundi 2019