Félag íslenskra teiknara

Tilgangur Félags íslenskra teiknara er að gæta hagsmuna teiknara á sviði grafískrar hönnunar, auglýsinga- og myndskreytinga. Félaginu er ætlað að efla og styrkja atvinnugreinina með faglegri fræðslu, sýningum o.fl. Félagið veitir félagsmönnum sínum aðstoð við fagleg og lögfræðileg atriði og gætir réttinda félagsmanna sinna.

Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum
Facebook
Instagram

Tilgangur

Tilgangur Félags íslenskra teiknara er að gæta hagsmuna teiknara á sviði grafískrar hönnunar, auglýsinga- og myndlýsinga. Félaginu er ætlað að efla og styrkja atvinnugreinina með faglegri fræðslu, sýningum o.fl. Félagið veitir félagsmönnum sínum aðstoð við fagleg og lögfræðileg atriði og gætir réttinda félagsmanna sinna.

Meðlimir í FÍT eru meðlimir í Hönnunarmiðstöð og Mydstef, þeir greiða lægri innsendingargjöld í FÍT keppnina, fá HA tímaritið frítt heim að dyrum og ýmis fríðindi og afslætti. 

Árgjald er 15.000 kr.og er greitt í gegnum heimabanka í upphafi árs.

  • Kristín Eva Ólafsdóttir - formaður - kristin@gagarin.is
  • Gísli Arnarson - varaformaður - gisli@gislia.is
  • Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir -  iris@reykjavik-underground.com
  • Linda Ólafsdóttir - (fulltrúi Fyrirmyndar, félags myndhöfunda) - linda@lindaolafsdottir.com
  • Helena Rut Sveinsdóttir - helenarut@gmail.com
  • Þorleifur Gunnar Gíslason - varamaður í stjórn - thollig@gmail.com
  • Anton Jónas Illugason - Fulltrúi nemenda

Félagsaðild

Til að gerast félagi í FÍT verður viðkomandi að hafa lokið þriggja ára námi í grafískri hönnun eða myndlýsingum við Listaháskóla Íslands (áður MHÍ), Myndlistaskóla Akureyrar eða í sambærilegum skóla erlendis. Að öðrum kosti verða þeir sem óska eftir að gerast félagar og hafa öðlast starfsreynslu að senda inn verk sem stjórnin metur og mælir með eða á móti félagsaðild.

Nemar í viðurkenndu námi í grafískri hönnun eða myndlýsingum greiða ekki félagsgjöld meðan á námi stendur.

Fyrirmynd

Fyrirmynd er félag myndhöfunda innan FÍT. Félagið var upphaflega stofnað árið 1996 með það að markmiði að bæta stöðu, samstöðu og hag myndhöfunda. Fyrirmynd var virkt félag um skeið, en fór þó lítið fyrir því þar til í lok árs 2017 að samþykkt á aðalfundi Félags íslenskra teiknara, að félag myndhöfunda í Fyrirmynd yrði endurvakið og myndi starfa undir hatti FÍT með fulltrúa Fyrirmyndar í stjórn FÍT. Fulltrúi Fyrirmyndar í stjórn FÍT er Linda Ólafsdóttir. 

ADC*E

FÍT er aðildarfélagi að Art Directors Club of Europe eða ADC*E sem eru samtök félaga evrópskra hönnuða og auglýsingagerðarfólks. Verk sem vinna til verðlauna í hinni árlegu FÍT keppni öðlast þátttökurétt í alþjóðlegri samkeppni ADC*E þar sem það besta í grafískri hönnun og auglýsingagerð í Evrópu er verðlaunað ár hvert. Keppnin er dæmd af um 50 fagaðilum alls staðar að úr Evrópu, en FÍT sendir árlega dómnefnd úr röðum félagsins. Formaður FÍT á sæti í stjórn ADC*E.

Heimasíða ADC*E:  www.adceurope.org