Endurmenntun HÍ - sérkjör til félagsmanna Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs 

2. október 2020

Félagsmönnum aðildarfélaga Miðstöðvar hönnunar- og arkitektúrs býðst 20% afsláttur á tvö námskeið úr dagskrá haustmisseris hjá Endurmenntun.

Um er að ræða námskeið í öllum námskeiðsflokkum að undanskildum námskeiðum með erlendum sérfræðingum og námskeiðum sem tilheyra lengra námi. 


Endurmenntun Háskóla Íslands hefur verið starfrækt síðan 1983 og er í fararbroddi í endur- og símenntun á Íslandi. Hún hefur margþætt tengsl við íslenskt samfélag og teygir anga sína víða. Hlutverk Endurmenntunar er, með öflugri nýsköpun í námsframboði og þjónustu, að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi.

Allir félagsmenn aðildarfélaga Miðstöðvar hönnunar og arkiktektúrs ættu að hafa fengið sendan afsláttarkóða í tölvupósti. Vinsamlegast hafið samband á info@honnunarmidstod.is ef kóðinn hefur ekki borist til þín.

Dagsetning
2. október 2020
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Tögg

  • Greinar
  • Námskeið
  • Fagfélög